hæhæ ég er komin til spánar og það er búið að vera ógeðslega
gaman ég er búin að vera hérna síðan á miðvikudaginn og ég
ætla að setja pínu lista yfir hvað ég er búin að vera að gera síðan
þá 
Miðvikudagur: Ég lagði af stað klukkan 12:50 og var lenti
um 5 leitið (7 leitið á spænskum tíma) Ragna og pabbi hennar komu
að sækja mig og svo keirðum við heim til hennar, by the way hún á
geggjað hús með geggjaðri sundlaug 
Fimmtudagur: Þá fórum við á markaðinn og ég keypti nokkra hluti
handa famelíunni og þannig svo fórum við heim í sólbað og sund og
vorum bara að chilla restina af deginum
Föstudagur: Við byrjuðum á að fara í nokkrar búðir en vorum svo
restina af deginum bara heima í sólbaði og sundi og þannig. Um
kvöldið fórum við á sport complex (veitingastaðinn sem
vinafólk þeirra eiga) og staðurinn var fullur plús að það
var einhver íslenskur gaur að spila á harmonikku og allir að
tala og ég var allveg að brjálast svo biðum við í 2 klukkutíma
eftir matnum því að eigendurnir bjuggust ekki við að það kæmu svona
margir en það var allt í lagi ég og Ragna fórum bara út og það var
fínt.
Laugardagur: Þá komu Þórunn (vinkona Rögnu) og Sigrún
(vinkona Þórunnar) sem hafði komið til spánar deginum áður til
okkar og við fórum í sund Sólbað og þannig.
Sunnudagur: Við fórum aftur á markaðinn og þá keypti ég mér
armband með nafninu mínu á og ég og Ragna keyptum okkur saman svona
lyklakippu sem er eins og brotið hjarta svo fáum við sitthvorn
helminginn og nafnið mitt er öðrumegin á báðum helmingum og nafnið
á Rögnu hinum meginá báðum helmingum. Seinna um daginnn fórum við í
afmælisveislu til Þórunnar og vorum þar fram á kvöld
Mánudagur: Ragna þurfti að fara í skólan útaf einhverju prófi
þannig að ég var ein þangað til kl. 14:30. Á meðan Ragna var í
skólanum fór ég bara í sund og horfði á sjónvarpið og eitthvað
þannig svo fór ég að sækja Rögnu og Þórunni í skólann og við fórum
á sport complex svo fórum við á ströndina og vorum bara
eitthvað að labba þar settumst svo niður og vorum bara eitthvað að
tala saman og þannig.
Þriðjudagur: Ragna þurfti að fara aftur í skólann þannig að ég
fór með ömmu hennar og afa til La Marina og keypti einhverja hluti,
svo fórum við á sport complex og ég fór bara eitthvað að tala við
Sigrúnu þangað til Ragna og Þórunn komu heim úr skólanum þá fórum
ég og Ragna bara heim í sólbað og sund og fórum svo bara að horfa á
bíómyndir.
Miðvikudagur: Í dag fórum við í dýragarðinn með Rögnu,
Auðunni, ömmu þeirra og afa síðan kom rigning og við þurftum að
fara snemma vegna þess að það byrjaði að rigna þannig að við fórum
bara heim að chilla
Fimmtudagur: Í dag fórum við að versla
við fórum í l'aljub
verslunarmiðstöðina og ég keypti nokkra hluti svo fórum við bara
heim
Föstudagur: Í dag vorum við bara í sólbaði og sundi og þannig
síðan komu Þórunn og Sigrún til okkar og við vorum bara eitthvað að
chilla síðan um kvöldið fórum við á Pisa að borða
Laugardagur: Við vorum bara eitthvað að chilla en um kvöldið
brann húsbíll rétt hjá þar sem Þórunn býr og við vorum að fylgjast
með því síðan horfðum við á die hard 2 og fórum að sofa.
Sunnudagur: Í dag er páskadagur og ég og Ragna vorum bara heima
að horfa á sjónvarpið og borða páskaegg
Mánudagur: Í dag var hellidemba og við gátum ekkert gert og
vorum eiginlega bara í tölvunni allann daginn
Þriðjudagur: Í dag fórum bið í Terra mitica!
það er
skemmtigarður í Benidorm og það var geðveikt gaman 
Miðvikudagur: Í dag vorum við bara heima í sólbaði og sundi og
þannig ekkert sérstakt
Fimmtudagur: Í dag fórum við á markaðinn og ég lét setja
geðveikar fléttur í hárið á mér
en annars vorum við bara að
chilla
Föstudagur: Í dag fórum ég, Ragna og Þórunn í Habaneras og ég
keypti mér nokkra hluti
Laugardagur: Í dag vorum við bara heima það var hellidemba og
þrumur og eldingar og allur pakkinn en um kvöldið fórum við á
camping að borða og þjónninn var geðveikt pirrandi
Sunnudagur: Í dag fórum ég og Ragna á markaðinn að gá hvort
ég myndi finna eitthvað sem mig langar í en ég fann ekkert síðan
vorum við bara heima í tölvunni allann daginn síðan um kvöldið
fórum við á sport complex
Mánudagur: Í dag er Ragna bara búin að vera að læra fyrir próf
og ég er bara í tölvunni